Bullið hans Sigmars

13.02.2008 23:50:05 / sigmar

Kallinn..

Jæja þá er maður mættur aftur hehe :d Kallinn sem ætlaði aldrei að blogga aftur :) Ég ákvað að blogga aftur þar sem ég hef ekkert annað að gera á kvöldin (fyrir utan að þrífa já nei takk). Einsog flest ykkar vita þá er ég fluttur aftur í Garðinn (í sólina) var ekki að meika að vera þarna í Kópavogi (var kominn með leið af þessu roki).fluttum í bílskúrsíbúð þar sem systir mín bjó áður, og var það fínt fyrstu 2 mánuðina en svo var bara allt að, þar sem lak inní íbúðina og þurftum við að vera í skóm inni í allavega 3 vikur og ekkert gerði hálvitinn (eigandinn) í þeim málum nema að koma og segja "LEKUR ENÞÁ INN":^). síðan gátum við ekki þrifið veggina þar sem málingin var eginlega bara grunnurinn eða eitthvað svoleiðis sem hann stal uppá velli..(kanavelli) Konan hans var altaf að láta hann koma yfir og spurja hversu lengi við ætluðum að vera þarna útaf því fólk vildi skoða íbúðina og eitthvað svona hehe fáviti .. Svo við ætluðum að bara að kaupa okkur saman íbúð en það gékk ekki þar sem spari.is var ekkert rosalega sáttur með það svo við urðum auðvita að taka tilit til þess :haha:  nei nei segji svona.. Við fundum nú ekki mikið af íbúðum hér í Garðinum á þessum millum sem við vorum búinn að ákveða svo var ég líka atvinnulaus svo við höfðum ekki efni á neinu slíku þá.. Svo mamma og pabbi, gáfu okkur grænt ljós um að búa til íbúð heima hjá þeim, eða svona. það var íbúð hér en bara fyrir 6 portugala sem voru að vinna hjá elmari að smíða.og voru bara rúm og sófi og eitthvað ógeðslegt eldhús sem þeir voru með.. Svo ég og helga byrjuðum á því að taka allt út úr íbúðinni allt parket og veggi og hurðar og gerðum allt sjálf og erum enþá að . Þetta er einhverjir 55 fermetra íbúð létum parket á stofuna og herbergið og parketlögðum við upp einn vegg inní herbergi svona "rúmgafl" helviti töff á samt eftir að láta parket utanum rúmið sem verður " sweet as hell"síðan létum einhverjar rángdýrar flísar á eldhúsið eða 72 stykki 33x33, og náttulega máluðum líka. fengum hjálp hjá málarameisturunum söru og henný en þaug taka af sér svona hluti fyrir aðeins 1000 kr getið kíkt á það inn á www.alltíplati.is svo gaf mamma okkur eldhúsinnrettingu og eldavél ofl.og eigum við eftir að baðið en það verður sko eytt í það er með fullt af hugmyndum sem verður erfitt að framkvæma svona sjálf þar sem við erum ekkert pro í smiðum, en þetta gengur allt vel held ég.síðan er hitt og þetta eftir t.d að klára að tengja sjónvarpið inn til okkar og láta hurðakarmanna á og mála smá...Roxy boxerinn okkar er alveg sprell lifandi (eða ég held það  núna í þessum töluðu orðum er hún uppí rúmi sofandi hehe einsog altaf) Hún fór á lóðery fyrir einhverjum 4 mánuðum og ætlaði ég aldeilis að ná mér í pening en nei greinilega hefur henni tekist að lesa það út um leið og hun myndi eignast kvolpa myndi allt kvolpavit fara úr henni og þa myndi hun ekki fengið allt sem henni dytti i hug eða gert allt sem henni dytti í hug svo hun sagdio bara neitakk við KUBB djöfulsins tíkin ;) :P en við munum reyna aftur núna í sumar hun hlytur að fara að leifa þetta hehe  Ég er kominn með vinnu við að selja eiturlyf eða svona næsti bær við það ;) (er samt löggiltur dópsali) fékk vinnu á starf.is við að sendast út með lyf í apotekin og í heimahús og er það bara gaman ;) Þetta er líka flott áskorun fyrir mig þar sem ég hætti í eiturlyfjum fyrir einhverjum 3 árum til að sanna að eg get verið heiðarlegur ... ég byrjaði aftur að drekka fyrir 1 ári síðan en er ekki að meika þessu drykkju lengur þar sem þetta fer bara í skapið á mér og konan er ekkert alveg að meika það þegar eg fæ mér í glas !! svo eg tók mína sjöundu ákvörðun um að hætta að drekka og losaði mig við alla 3 vini mina sem ég átti eftir til að geta hætt að drekka er ekki að segja það að þetta sé þeim að kenna als ekki eg bara get ekki átt vini sem drekka oft þá freistast ég allur upp og hringi og spyr um party bara fínt að vera laus við þetta allt saman...Ég fór á minn fyrsta AA fund í gær með Guðna, sem var alveg geggjað. ég er ekki búinn að fara á fund í 1 og halft ár og var þetta bara geggjað og ætla eg að stunda þetta einsog á að stunda þetta :) Ég er altaf að reyna að kaupa mér bíl en það er ekkert að ganga þar sem ég á nu ekki mikinn pening til að setja út og vill helst taka 90% lán en lána fyrirtæki í dag lána bara ekkert nema 60% ekkert smá mikið rugl....allir í handbremsu þar sem allir íslendingar "næstum því" eru með lán þá vilja þeir ekki lána meira...en allavega.... komið gott í bili endileg spurjið ef ykkur vantar að vita eitthvað

» 8 hafa sagt sína skoðun

13.02.2008 22:39:22 / sigmar

Nýtt bloggsvæði á BlogCentral

Eigandi þessa nýja bloggs hefur ekki gefið út fyrstu bloggfærsluna sína. Viðkomandi er án efa í óða önn að velja sér flott útlit, aukahluti, hlaða upp myndum og semja meistaraverk til að færa á spjöld sögunnar. Við bjóðum viðkomandi að sjálfsögðu velkominn á BlogCentral!

» 0 hafa sagt sína skoðun


Heimsóknir
Í dag:  1  Alls: 4496
Könnun
Eru margar stafsetningavillur í textanum mínum ;)
9 atkvæði

nei
4 atkvæði

Fjöldi atkvæða: 13
Þínir flokkar
Gamalt blogg